is
Ses
H.c. Andersen

Flibbinn

Uygulamada dinle
Oflátungslegur flibbi bítur í sig þá hugmynd að hann sé kominn á giftingaraldur. Hann fer á fjörurnar við fallegt sokkaband í þvottakörfunni, en fær afdráttarlausa höfnun. Strauboltinn tekur málskrúði hans fortum fjarri og skærin sníða í hann rifu til að sýna vandlætingu sína. Loks leitar hann ásjár hjá greiðunni, en hún reynist lofuð öðrum.

Þegar nálgast ævikvöldið hyggst flibbinn fegra sögu sína, og segir hana fjálglega. En dramb er falli næst og hans bíða nokkuð óvænt örlög.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.



H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Í „Flibbanum" eiga sér stað töfrar, eins og svo oft í sögum Andersens, og dauðir hlutir öðlast líf og mennsk persónueinkenni. Oftar en ekki má draga lærdóm af þessum sögum, og endurspegla hlutirnir gjarnan kosti og galla mannfólksins. Úr verður skemmtilega kaldhæðin táknsaga, með bísna nútímalegan boðskap í anda samþykkis og sannsögli.
0:06:14
Yayımcı
Saga Egmont
Yayınlanma yılı
2020
Bunu zaten okudunuz mu? Bunun hakkında ne düşünüyorsunuz?
👍👎
fb2epub
Dosyalarınızı sürükleyin ve bırakın (bir kerede en fazla 5 tane)