no
Kitaplar
H.C. Andersen

Síðasti draumur eikitrésins gamla

Í þrjúhundruð sextíu og fimm ár hefur gamla eikitréð staðið á sama stað í skóginum. Okkur virðist það óralangt, en fyrir öldunginum er tíminn afstæður og eitt ár virðist jafnast á við einn dag í okkar lífi. Enn annar tímamælikvarði er á lífi dægurflugunnar, sem flögrar í kring um blöð eikarinnar. Þær talast við um tímans rás, en skilja ekki hvor aðra.
Þegar hausta tekur færist nótt yfir gamla eikitréð. Það fellir laufin og vefur sig í mjúkan fannarfeld, sofnar og leggst í dvala. Í vetrarsvefninum dreymir það einkennilegan draum, sem reynist vera fyrirboði, eða jafnvel birtingarmynd raunveruleika.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

H.C. Andersen (1805–1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Síðasti draumur gamla eikitrésins" er ein af jólasögum hans, sem hafa unnið sér stað í hjörtum lesenda um víðan heim. Þar vekur hann náttúruna til lífsins og fær hana á fagran hátt til að spegla veruleika mannanna. Tíminn er afstæður eftir því hvernig er á hann litið, en eilífðin er alltaf sú sama.
9 yazdırılmış sayfalar
Orijinal yayın
2020
Yayınlanma yılı
2020
Yayımcı
Saga Egmont
Bunu zaten okudunuz mu? Bunun hakkında ne düşünüyorsunuz?
👍👎
fb2epub
Dosyalarınızı sürükleyin ve bırakın (bir kerede en fazla 5 tane)