no
Kitaplar
Óþekktur

Grettis saga

Grettis saga fjallar um Gretti sterka Ásmundarson frá Bjargi í Miðfirði. Hann var ógnarsterkur og hræddist fátt. Verkið segir frá æsku Grettis og uppvexti, lífshlaupi hans og óláni. Einna þekktust er sagan af útlegð hans sem endaði í Drangey í Skagafirði þar sem hann var að lokum veginn. Grettis saga telst til þekktustu og vinsælustu Íslendingasagna og er mikilvæg lesning fyrir alla unnendur þeirra.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
217 yazdırılmış sayfalar
Orijinal yayın
2020
Yayınlanma yılı
2020
Yayımcı
Saga Egmont
Bunu zaten okudunuz mu? Bunun hakkında ne düşünüyorsunuz?
👍👎
fb2epub
Dosyalarınızı sürükleyin ve bırakın (bir kerede en fazla 5 tane)